golfform.is
  • Forsíða
  • Golfþjálfun
    • Golfstaða
    • Golfliðleiki
    • Golfstyrkur
    • Golfmeiðsli
  • Líkamsmat
  • GF verðskrá
  • Námskeið
  • Greinar
    • Golfpýramídinn
    • Ertu á leiðinni í golfferð?
    • S - líkamsstaða
    • C - líkamsstaða
    • 5 breyttar golfform áherslur
    • Hnébeygja
    • Hesturinn
    • Mikilvægi góðs jafnvægis
    • X-áhrifin í sveiflunni
    • Kvið vöðvarnir
    • Kóbran
    • Kominn tími til ....
    • Styrktaræfingar
    • Fróðleikur>
      • Vöðvavinna
      • Vöðvastyrkur
      • Liðleikaþjálfun
      • Styrktarþjálfun
      • Þolþjálfun
  • Um Golfform
    • Hafðu samband
  • Gjafabréf
Styrktarþjálfun Golfform — Lykillin að aukinni högglengd.

Golfsveiflan er fínstillt röð hreyfinga sem leiða af sér sprengi kraft við högg. Þessi röð stjórnast af vöðva og taugakerfi líkamans sem vinna saman að aukinni hreyfifærni einstaklingsins. Við þjálfun fyrir golf er mikilvægt framkvæma styrktarþjálfun af einhverju marki..

Gerðir styrktarþjálfunar
Dýmamísk styrktarþjálfun eða starfræn styrktarþjálfun þýðir að líkaminn hreyfist eftir misjöfnum hreyfiferlum. Styrktarþjálfun fyrir kylfinga ætti að stuðla að þjálfun í öllum hreyfiferlum sem líkaminn vinnur í, um leið ætti einnig að vinna með sérhæfða þjálfun fyrir golf.

Þar sem golfsveiflan er dýnamísk og felur í sér mikinn snúning á líkamanum þarf styrktar prógrammið að vinna með slíkar æfingar. Ég vinn með líkamsþyngd, laus lóð, þjálfun í trissu, medicine bolta og teygjur til þess að auka dýnamískan styrk í snúningsferlum.
 
Einangruð styrktarþjálfun
Í sumum tilfellum þarf að vinna með einangraða styrktarþjálfun til þess að laga hreyfifærni, bæta stöðugleika hryggsúlunnar eða til þess að endurhæfa eftir meiðsli.

Sérhæft golfmat
Til þess að hægt sé að sníða æfingakerfi fyrir hvern og einn er hann settur í sértækt golf mat en það gefur mér einnig færi á að fylgjast með framförum í þjálfuninni.  Mikilvægt er að hafa hugfast að kylfingurinn búi yfir almennri hreyfifærni áður en farið er vinna með sérhæfða golfþjálfun.

Kylfingar vinna oft í nýjum eða flóknum æfingum áður en líkami þeirra er reiðubúinn undir það, slíkt er ekki einungis tímasóun heldur getur slík þjálfun einnig leitt til meiðsla.

Rannsóknir hafa sýnt að sérhæfð styrktarþjálfun fyrir golf eykur hraða á kylfuhausnum og högglengd. Rannsókn sem var framkvæmd 2004 , skoðuð voru áhrif styrktarþjálfunar á högglengd og hraða kylfuhauss hjá karlkyns kylfingum.
        Í rannsókninni var högglengd kylfinga skoðuð eftir átta vikna þjálfun, æft var tvisvar í viku og einblínt var á styrktarþjálfun og plýómetríska (sprengikrafts) þjálfun.
Í lok þjálfunarinnar kom í ljós að æfingahópurinn jók kylfhraða og högglengd verulega.

Vel skipulagt æfingakerfi fyrir kylfinga ætti að vera byggt á nákvæmum mælingum og innihalda skal styrktarþjálfun auk þess að koma inná stöðu, liðleika jafnvægi og kraft.
Picture