![]() Grip kylfingsins um golfkylfuna þarf að vera sterkt og stöðugt til þess að geta skilað kraftinum útí kylfuna sem kylfingurinn býr til með stöðunni og snúningnum í sveiflunni. Það þarf að vera jafnvægi milli þess að halda um kylfuna með afslöppuðu gripi eða ,,dauða" gripi sem leiðir til spennu í upphandleggjum sem síðan hefur áhrif á sveifluna sjálfa. Það eru margar leiðir þess að bæta gripstyrkinn, hægt er kaupa svokallaða gripþjálfa sem eru mis stífir, einnig er hægt að versla sér bolta eins og skvassbolta og kreista þá t.d. þegar verið er að keyra eða hafa einfaldlega á skrifstofunni og grípa í þá þegar hentar. Einnig eru fjöldi greina um til um þjálfan framhandleggs og fingurvöðva. Sama hvað leið þú ferð er mikilvægt að vera með plan varðandi þessa þjálfun eins og alla aðra þjálfun, og það þarf að gera ráð fyrir hvíldum líka. Þó það sé í sjálfu sér gott að hafa æfingar til þess að auka gripstyrk getur einnig verið gott að horfa á heildarmyndina og reyna að gera sér grein fyrir hvort sért nú þegar að þjálfa gripstyrkinn. Ef þú heldur oft á þungum hlutum eða lóðum eykur það styrkinn. Þegar þú ert að halda á lóðum fyrir mismunandi æfingar í líkamsræktarsalnum er það frekar gripið sem gefur sig frekar en stærri vöðvar eða vöðvahópar. EIn besta æfingin til þess að bæta gripstyrk, axlar og miðju stöðugleika, auk þess að auka hjartslátt er bændaganga. Hvernig framkvæma skal æfinguna. 1. Lyftu einhverju þungu (handlóði, ketilbjöllu, þungri tösku eða fötu fullri af steinum. 2. Veldu þyngd sem þú getur nokkuð auðveldlega haldið í 20 sekúndur, án þess að leggja áhaldið frá þér. 3. Labbaðu um þar til þú verður að leggja hlutinn frá þér, gættu þess að líkamsstaðan sé góð. 4. Framkvæmdu 2-5 sett af þessari æfingu þar til þú getur haldið þynginni í 1 mínútu. Þegar þú getur verið lengur en 1 mínútu er nauðsynlegt fyrir þig að auka þyngdina. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi líkamsþjálfun fyrir kylfinga hvet ég þig til þess að hafa samband við Golfform á golfform@golfform.is
0 Comments
|
GolfformSérhæfð líkamsþjálfun fyrir kylfinga, sem hefur það að markmiði að vekja kylfinga um líkamlegan undirbúning fyrir golf íþróttina. Flokkar
All
Safn
May 2015
|