![]() Einn mikilvægasti vöðvahópurinn sem kylfingurinn notar í golfsveiflunni eru core vöðvarnir, en þeir samanstanda af þindinni, djúplægu kviðvöðvunum ásamt skálægu kviðvöðvunum. Þjálfun core vöðvanna er mikivæg fyrir kylfinga því allar hreyfingar líkamans má rekja til þeirra, ef kylfingur er með slaka core vöðva má tengja það beint til minnkandi krafts í golf sveiflunni. Þyngdarpunktur líkamans er í core vöðvunum og þar eru upptök kraft myndunar, afleiðing slakra core vöðva eru yfirleitt léleg eða slæm líkamsstaða sem leiðir svo til slits og meiðsla í líkamanum. Kylfingur sem er með slaka core vöva er viðkvæmur fyrir meiðslum og á hann oft við að stríða litla skilvirkni í sveiflunni. Hér er einfalt sjálfs próf fyrir core vöðvana þína! 1. Leggstu á bakið og beygðu fætur uppí 90° 2. Færðu aðra höndina undir mjóbakið. 3. Haltu góðum þrýsting á hendinni með mjóbakinu. 4. Réttu nú rólega úr fótunum og láttu þá síga rólega að gólfi um leið og þú heldur þrýstingnum á bakinu. Hvað lýsir því best hvað gerðist við framkvæmdina á prófinu. A. Þrýstingurinn á höndina hvarf um leið og ég byrjaði að hreyfa fæturna niðu í átt að gólfi. B. Ég fann að þrystingurinn á höndina minnkaði talsvert C. Ég fann að sami þrýstingur hélst á hendinni allan tímann á sem ég rétti úr fótunum niður í átt að gólfi. Ef A lýsir best hvað gerðist við hreyfinguna þarftu að vinna verulega mikið í core þjálfun, ef B lýsir best hvað gerðist þarftu að leggja nokkra áherslu á core þjálfun. Ef C á best við þig ertu með verulega góðan core styrk og haltu honum við með áframhaldandi þjálfun. Hvað æfingar getur þú gert til þess að þjálfa core vöðvana? Planki er mjög góð core æfing, hægt er að stjórna erfiðleika þjálfunarinnar með því að byrj að á því að vera á hnjám og olnboga og uppí það að vera með annan fótinn í gólfi og aðra hendi. Armbeygjur eru einnig góðar til þess að þjálfa core styrk, þegar ákveðnum grunnstyrk er náð í core vöðvunum er mikilvægt að þróa æfingarnar enn frekar með því að notast við Swiss bolta og taka æfingar eins og Vasahnífinn, Hliðarrúll á bolta og jafnvægi á Swiss bolta.
0 Comments
![]() Kenningin um X factor í golfsveiflunni kom fram á sjónarsviðið árið 1992 og var það golfkennarinn Jim McLean sem setti þessa kenningu fram. Enn þann dag í dag er þetta gott og gilt hugtak og golfkennarar jafnt sem flest allir kylfingar er meðvitaður um það. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á X-factor eða x-áhrifin eins og þetta verður kallað hér eftir. Hvað eru x-áhrifin Samkvæmt Dr. Greg Rose hjá TPI, er það aðskilnaður á milli efri og neðri hluta líkamans. Ef kylfingur snýr neðri hluta líkamans (mjöðmum) í 40 gráður og efri hluta líkamans (öxlum) í 90 gráður eru x áhrifin hjá þessum kylfingi 50 gráður. (90-40=50). Betri kylfingar með meiri x-áhrif Enn er verið að rannsaka þessa ákveðnu hreyfingu í golfsveiflunni, í nýlegri rannsókn sem var framkvæmd í Standford háskólanum á síðasta ári kom greinilega í ljós. eftir því sem x-áhrifin eru meiri hjá kylfingnum því meiri sveifluhraða nær hann að framkvæma. Einnig sýndi rannsóknin fram á það að kylfingar með lægri forgjöf eru með meiri x-áhrif í en kylfingar með hærri forgjöf. Kylfingar í fremstu röð eru meðvitaðri um mikilvægi líkamsþjálfunar og stunda hana skipulagt ásamt golfþjálfun sinni. Hvað er til ráðs? En hvað getur hinn almenni kylfingur gert til þess að slá lengra? Keypt sér stærri og betri dræver, eða ákveðið að fara að þjálfa líkama sinn þannig hann verði hæfari til þess að sveifla kylfunni sem kylfingurinn er með í höndunum. Það gengur ekki að rjúka útá æfingasvæði og ætla að æfa sig í fá meiri x-áhrif í sveifluna, kylfingurinn þarf að byrja á því að auka liðleika og styrkja svo líkamann til þess að hann geti aukið x-áhrifin og sveiflað kylfunni hraðar og með meiri skilvirkni. Æfingar sem þjálfa rétta vöðva Hvaða æfingar geta kylfingar gert til þess að auka þennan þátt hjá sér? Í raun og veru hjálpa allar æfingar sem innihalda snúnings hreyfingu og sem styrkja core vöðvana sem fjallað var um í síðasta pistli. Planka æfingar og rússneskur kviður er æfing sem þjálfar skálægu kviðvöðvana sérstaklega vel Ekki skal heldur gleyma því að auka hreyfanleika í líkamanum með réttri liðleika þjálfun. Æfing - Rússneskur kviður: 1. Sestu á gólfið með fætur bognar en iljar í gólfi. 2. Passaðu uppá að stja skáhallandi en vera með beint bak. 3. Byrjaðu með léttan bolta eða lóð öðru megin við þig og haltu um áhaldið með báðum höndum. 4. Færðu hlutinn rólega yfir á hina hliðina og láttu hann serta golf hinum megin við þig. (Sjá myndir) 5. Framkvæmdu þessa hreyfingu 12-20 seinnum og þú getur aukið hraðann ef þú ræður vel við þetta. Framkvæmdu 3 sett með smá hvíld á milli setta. 6. Hægt er að auka erfiðleika stig æfingarinnar með því að vera með þyngri bolta / lóð. Einnig má halda fótum örlítið frá gólfi til þess að auka erfiðleikann enn frekar og líka bæta við endurtekningum. |
GolfformSérhæfð líkamsþjálfun fyrir kylfinga, sem hefur það að markmiði að vekja kylfinga um líkamlegan undirbúning fyrir golf íþróttina. Flokkar
All
Safn
May 2015
|