Þar sem kylfingar eru oft á tíðum ekki meðvitaðir minnkandi liðleika í mjöðmum sést þeim oft á tíðum yfir að frammistaða þeirra á golfvellinum og/eða bakverkur eru oft á tíðum bein afleiðing stífra mjaðma.
Hversdagsleg atriði á lífsleiðinni eins og hlaup, stefnubreytingar, fótbolti, tæklingar og föll við íþróttaiðkun hafa afleiðingar á stífleika mjaðmasvæðisins. Eina leiðin til þess að finna út hversu miklum liðleika kylfingur hefur tapað í mjöðmum er að mæla miðlægan mjaðmasnúning. Taka skal fram að þetta mælir ekki hversu mikið þú snýrð mjöðmunum í golfsveiflunni heldur mælir þetta stöðu liðleika í mjöðmum.
0 Comments
![]() Hver hefur ekki fengið að heyra setningar eins og, horfðu á boltann?Þú leist upp? Þú steigst uppúr sveiflunni? Haltu þunganum í vinstri fætinu? Ef þú hefur farið í golfkennslu eða spilað hring með félögunum hefur þú eflaust fengið að heyra einhvern af þessum frösum. En fyrir hvað standa þessar setningar? Þýðir þetta að þú sláir lengra, beinna eða af meiri stöðugleika ef svo ólíklega vildi til að þú næðir að laga þetta í næsta höggi? Golfsveiflan er flókin og einstaklingsbundið fyrirbæri sem þarfnast mismunandi nálgunar fyrir hvern og einn. Tilgangurinn með þessari grein er að reyna að kenna þér eða segja þér í nokkrum atriðum hvernig þú getur útbúið æfingaáætlun fyrir þig til þess að þú bætir leik þinn. 1. Getur þú staðið á öðrum fæti með augun lokuð, lengur en í 15 sekúndur án þess að detta eða opna augun.? Sá fótur sem er ekki staðið á að vera í 90° útfrá mjöðm. 2. Getur þú snert á þér tærnar án þess að beygja hné? 3. Getur þú rétt úr höndum fyrir ofan höfuð, án þess að beygja á þér hendurnar eða sveigja aftur á þér bakið? 4. Getur þú framkvæmt hnébeygju? Getur þú framkvæmt djúpa hnébeygju án þess að detta. 5. Getur þú spilað 18 holur án þess að þreytast verulega á meðan þú spilar? Ef svarið er nei við öllum fimm spurningum þarft þú að koma þér í samband við þjálfara til þess að koma þér aftur á beina braut, það er talsvert meira í gangi með líkama þinn en eitt blogg getur afgreitt. Ef svarið er neitandi við spurningu 1 og seinni hlutanum í spurningu 4, þá þarftu að vinna í jafnvæginu eða fá aðstoð þjálfara til þess að vinna í því með þér. Ef svarið er neitandi við spurningu 2,4 og/eða 3 þarftu að vinna með liðleikaþjálfun. Framkvæma æfingar eins og teygjur, nudd, og mýkja upp stífa og auma líkamshluta með frauðrúllu. Ef svarið við lið 5 er neitandi þarftu að vinna með þolþjálfun. ![]() Til þess að framkvæma öfluga golfsveiflu krefst hún bæði liðleika og hreyfanleika af kylfingnum. Þess vegna er séhæfð liðleikaþjálfun fyrir golf mikilvægur liður í þjálfun kylfinga. Liðleiki og hreyfanleiki eru hvort tveggja hugtök sem eru oft nefnd í tengslum við golfsveifluna. Þótt lík séu eiga þau við um sitthvora virknina. Liðleiki er hæfni vöðvana til þess að lengjast í hreyfingu. Hreyfanleiki á við um eiginleika liðamóta til þess að fara í gegnum ákveðið hreyfiferli. Góðu fréttirnar eru þær að báða þessa eiginleika er hægt að bæta með liðleikaþjálfun hjá Golfform. Niðurstaða málsins er: Byrjaðu að teygja! Viltu bæta frammistöðu þína á golfvellinum? Ekki sleppa því að teygja! Teygjuæfingar fyrir golf er nauðsynlegar til þess að bæta leik þinn. Hægt er að vinna með ýmsar gerðir liðleikaþjálfunar. Með stöðu liðleikaþjálfun á að halda sömu stöðu í 30 sek eða lengur. Golfform notar stöðu liðleikaþjálfun þegar lagfæra þarf óæskilega líkamsstöðu eða þegar þarf að vinna sérstaklega með einn ákveðinn vöðvahóp. Dýnamískar teygjur eru notaðar í þeim tilgangi að undirbúa líkamann í að framkvæma golfsveifluna. Sveiflan er í eðli sínu dýnamísk og því ætti upphitunar kerfið þitt að samanstanda af dýnamískum teygjum ekki stöðugum teygjum. Golfform notar líka ýmsar aðrar gerðir þjálfunar til þess að auka liðleika um liðamót og eftir sérhæfðar liðleikamælingar er fundin sú lausn sem skilar bestum árangri fyrir hvern og einn. Hvernig er axlar snúningur þinn? Helstu kosti liðleikaþjálfunar má helst greina með axlar snúning og svokölluðum X - þáttur. Góður axlarsnúningur í golfsveiflunni er mikilvægur þáttur í kröftugri sveiflu. X - áhrifin, sem er munurinn á axlar snúningi og mjaðmarsnúningi. gefur oft til greina hæfni einstaklingsins á ná miklum hraða á kylfuhausinn og krafti. Því öflugri sem X - áhrifin eru því betri sveifluferill er í aftursveiflunni, sem leiðir til aukins krafts og lengri högga. Greinilegt er að aukinn golf liðleiki, auk stöðugleika og stjórnunar, bætir ekki bara golfsveiflu þína heldur einnig sveifluhraða þinn sem leiðir af sér aukna högglengd. Golfform getur hjálpað þér að ná þessum markmiðum. |
GolfformSérhæfð líkamsþjálfun fyrir kylfinga, sem hefur það að markmiði að vekja kylfinga um líkamlegan undirbúning fyrir golf íþróttina. Flokkar
All
Safn
May 2015
|