![]() Til þess að framkvæma öfluga golfsveiflu krefst hún bæði liðleika og hreyfanleika af kylfingnum. Þess vegna er séhæfð liðleikaþjálfun fyrir golf mikilvægur liður í þjálfun kylfinga. Liðleiki og hreyfanleiki eru hvort tveggja hugtök sem eru oft nefnd í tengslum við golfsveifluna. Þótt lík séu eiga þau við um sitthvora virknina. Liðleiki er hæfni vöðvana til þess að lengjast í hreyfingu. Hreyfanleiki á við um eiginleika liðamóta til þess að fara í gegnum ákveðið hreyfiferli. Góðu fréttirnar eru þær að báða þessa eiginleika er hægt að bæta með liðleikaþjálfun hjá Golfform. Niðurstaða málsins er: Byrjaðu að teygja! Viltu bæta frammistöðu þína á golfvellinum? Ekki sleppa því að teygja! Teygjuæfingar fyrir golf er nauðsynlegar til þess að bæta leik þinn. Hægt er að vinna með ýmsar gerðir liðleikaþjálfunar. Með stöðu liðleikaþjálfun á að halda sömu stöðu í 30 sek eða lengur. Golfform notar stöðu liðleikaþjálfun þegar lagfæra þarf óæskilega líkamsstöðu eða þegar þarf að vinna sérstaklega með einn ákveðinn vöðvahóp. Dýnamískar teygjur eru notaðar í þeim tilgangi að undirbúa líkamann í að framkvæma golfsveifluna. Sveiflan er í eðli sínu dýnamísk og því ætti upphitunar kerfið þitt að samanstanda af dýnamískum teygjum ekki stöðugum teygjum. Golfform notar líka ýmsar aðrar gerðir þjálfunar til þess að auka liðleika um liðamót og eftir sérhæfðar liðleikamælingar er fundin sú lausn sem skilar bestum árangri fyrir hvern og einn. Hvernig er axlar snúningur þinn? Helstu kosti liðleikaþjálfunar má helst greina með axlar snúning og svokölluðum X - þáttur. Góður axlarsnúningur í golfsveiflunni er mikilvægur þáttur í kröftugri sveiflu. X - áhrifin, sem er munurinn á axlar snúningi og mjaðmarsnúningi. gefur oft til greina hæfni einstaklingsins á ná miklum hraða á kylfuhausinn og krafti. Því öflugri sem X - áhrifin eru því betri sveifluferill er í aftursveiflunni, sem leiðir til aukins krafts og lengri högga. Greinilegt er að aukinn golf liðleiki, auk stöðugleika og stjórnunar, bætir ekki bara golfsveiflu þína heldur einnig sveifluhraða þinn sem leiðir af sér aukna högglengd. Golfform getur hjálpað þér að ná þessum markmiðum.
0 Comments
Leave a Reply. |
GolfformSérhæfð líkamsþjálfun fyrir kylfinga, sem hefur það að markmiði að vekja kylfinga um líkamlegan undirbúning fyrir golf íþróttina. Flokkar
All
Safn
May 2015
|