![]() Sífellt fleiri íslenskar konur eru farnar að stunda golf, fjöldi kvenkylfinga á íslensku mótaröðinni sem og áhugamanna kylfinga hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin. Mikilvægt er fyrir konur að hunsa ekki að leggja áherslu á líkamsþjálfun til þess að árangur á golfvellinum jafnt sem til þess að draga úr hættu á meiðslum við golfiðkun. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga fyrir kven kylfinga.
Konur eru yfir höfuð liðugri en karlar þrátt fyrir að það séu undantekningar frá þeirri reglu. Konur geta unnið með liðleika til þess að viðhalda honum svo þær haldi fullum hreyfanleika í gegnum golfsveiflun . Á meðan liðleiki er mikilvægur fyrir kven kylfinga, er styrkur nauðsynlegur. Flestar konur ættu að leggja áherslu á vöðvastyrk vilji þær bæta frammistöðu sína á golfvellinum. Konan ætti að leggja áherslu á að styrkja þá vöðva sem hún sér ekki þegar hún stendur fyrir framan spegil. Neðra bak, rassvöðvar, aftanlæris vöðvar, kviðvöðvar og vöðva á axlarsvæðinu. Æfingar sem stykja miðlæga vöðva eins og dauðalyfta, góðan daginn, ýmsar róðra æfingar og æfingar sem reyna á alls herjar líkamsstyrk eins og viðarhögg með medicine bolta eru dæmi um góðar æfingar fyrir konur sem vilja bæta sig á golfvellinum í sumar.
0 Comments
Leave a Reply. |
GolfformSérhæfð líkamsþjálfun fyrir kylfinga, sem hefur það að markmiði að vekja kylfinga um líkamlegan undirbúning fyrir golf íþróttina. Flokkar
All
Safn
May 2015
|