Almennt um námskeiðiðGolfform býður nú uppá sérhæft líkamsþjálfunar námskeið fyrir kylfinga í Veggsport.
Unnið er eftir CHEK Golf Performance Series kerfinu:
Lokaðir tímar 2var í viku – golfupphitun, liðleikaþjálfun, stöðugleikaþjálfun. Styrktarþjálfun í sal og stöðvaþjálfunu í tækjasal. Sveiflugreining – þar sem verið er að skoða líkamsstöðu og líkamsbeitingu í golfsveiflunni. Sér 30 mín tími fyrir utan námskeiðs tíma. Þátttakendur fá í hendur blað með æfingunum sem farið var í tímanum í lok hvers tíma. Hægt að vinna með einhverjar æfingar heima. Aðgangur að tækjasal Veggsport þar sem hægt er að mæta og æfa aukalega eftir sérhæfðu golf stöðugleika- styrktar- og liðleikakerfi í samráði við þjálfara. Aðgangur að fróðleik og æfingum inná lokuðu æfingasafni hjá Golfform.is. Hámarks fjöldi þátttakenda 12 kylfingar. Kennari: Hallgrímur Jónasson CHEK Golf Performance Series þjálfari og íþróttafræðingur. |
Líkamsþjálfun fyrir kylfinga
4 vikna námskeið í líkamsþjálfun fyrir kylfinga, komdu þér í betra líkamlegt form fyrir golf tímabilið. Ekki eyða fyrstu vikum golfsumarsins í það að koma þér í form. Stöðugleika-, styrktar og liðleikaþjálfun fyrir kylfinga.
Dagsetning: 2. - 25. apríl Hvenær: Þriðjudagar og fimmtudagar kl.18.30 – 19.30 Hvar: Veggsport, Stórhöfða Verð: 9.900 Skráning: Opið fyrir skráningar á haddi@golfform.is eða í síma 892-1681 |