LíkamsmælingarLíkamsstaða
Samræmi í líkamsstöðu skoðað útfrá miðlínu, metinn er vöðvastærð, útlímahlutföll og líkaminn metinn sem heild. Leitað eftir jafnvægi ákveðinna líkamshluta til að tryggja að líkaminn starfi sem best. C.H.E.K mælingar byggja á ýmsum mælingum á stöðu mjaðmagrindar, sveigju mjóbaks og brjóstbaks, Með þeim fást mikilvægar upplýsingar um hvaða vöðva þarf að styrkja og hvaða vöðva þarf að liðka. LiðleikamælingarCHEK liðleika mælingar
Skoðaður er liðleiki helstu líkamshluta, bakvöðvar, mjaðmavöðvar, fótvöðvar o.fl. Stífir eða og teygjanlegir vöðvar geta haft mikil og takmarkandi áhrif á golfsveifluna.TIl þess að meta liðleika ástand viðkomandi fer hann í gegnum liðleika próf, það segir til um á hvaða skala í liðleika viðkomandi sé og hvað áherslu eigi að leggja á liðleika í þjálfun hans. StyrktarmælingarCore vöðvarnir
Einn mikilvægasti vöðvahópurinn sem kylfingurinn notar í golfsveiflunni eru core vöðvarnir, core vöðvarnir eru þindin, djúplægu kviðvöðvarnir ásamt skálægu kviðvöðvunum. Virkni þessara vöðva eru kannaðir með ýmsum prófum sem segja til um virkni þeirra. Vöðvastyrks jafnvægi Mikilvægt er að ekki sé mikil munur á milli gagnverkandi vöðvahópa, t.d. framlæris vöðva og aftanlæris vöðva. Ef mikið misræmi er á milli gagnverkandi vöðvahópa þarf að vinna að jafnvægi. |
|