golfform.is
  • Forsíða
  • Golfþjálfun
    • Golfstaða
    • Golfliðleiki
    • Golfstyrkur
    • Golfmeiðsli
  • Líkamsmat
  • GF verðskrá
  • Námskeið
  • Greinar
    • Golfpýramídinn
    • Ertu á leiðinni í golfferð?
    • S - líkamsstaða
    • C - líkamsstaða
    • 5 breyttar golfform áherslur
    • Hnébeygja
    • Hesturinn
    • Mikilvægi góðs jafnvægis
    • X-áhrifin í sveiflunni
    • Kvið vöðvarnir
    • Kóbran
    • Kominn tími til ....
    • Styrktaræfingar
    • Fróðleikur>
      • Vöðvavinna
      • Vöðvastyrkur
      • Liðleikaþjálfun
      • Styrktarþjálfun
      • Þolþjálfun
  • Um Golfform
    • Hafðu samband
  • Gjafabréf

Liðleikaþjálfun kylfinga

Picture
Golf er íþrótt sem krefst  hreyfiliðleika.  Liðleiki er getan til þess að hreyfa vöðva eða vöðvahóp í gegnum allt hreyfiferlið. Aukinn hiti í vöðvm og hreyfing í tengivef og líðamótum hefur vegna upphitunar hefur jákvæð áhrif á teygjanleika vöðvana.  Liðleiki er nauðsynlegur til þess að kylfingurinn nái hámarks hraða á kylfuhausinn. Sveiflan samanstendur af aftursveiflunni þar sem gagnverkandi kraftur er byggður upp fyrir niðursveifluna og einnig framsveifluna.  

Liðleiki ætti því að vera hluti af æfingum kylfinga þar sem lögð er áhersla á axlir, mjóbak og mjaðmir. Ekki hafa neinar rannsóknir bent til þess að liðleikaþjálfun komi í veg fyrir eða dragi á einhvern hátt úr meiðslum hjá kylfingum.

Liðleikaþjálfun fyrir golfhring hefur jákvæð áhrif á árangur kylfinga, rannsókn sem byggði á níu stöðuteygjum sem einblíndu golfvöðva, var hverri teygju haldið í um 5 sekúndur. Þrjár axlateygjur voru framkvæmdar,  ein teygja fyrir neðri kvið, ein fyrir aftanverð læri, ein fyrir  brjóst, tvær fyrir úlnliði og ein teygja fyrir framhandleggi. Á milli fyrstu og annarrar viku jók rannsóknarhópurinn kylfuhraða um 12.8%, og þegar mældur var hraði kylfuhöfuðsins milli fyrstu og sjöundu viku kom í ljós 24.0% aukning á hraða.

Þættir sem hafa áhrif á liðleika

Liðleiki er mjög einstaklingsbundinn og mikill munur getur verið á liðleika á einsleitum hópi einstaklinga, t.d. eins og innan knattspyrnu eða körfuknattleiks liði.  Liðleiki getur verið háður fjölmörgum þáttum sem hafa áhrif á mögulegan hreyfanleika vöðvans .  Almennt er talið að uppbygging liðarins, gerð hans og vöðvauppbygging kringum hann hafi gríðarlega mikil áhrif á hreyfanleika liðarins. Hreyfanleiki um lið stjórnast af gerð hans, vöðvum, sinum og liðböndum sem liggja um þar til gerðan lið .  Eftir því sem einstaklingurinn eldist verður teygjanleiki vöðva hans minni sem veldur því að hreyfanleiki verður minni. Kyn hefur einnig áhrif á vöðva og hreyfileika liðamóta. Konur eru yfirleitt liðugari en karlar á öllum aldri. Hreyfing hefur einnig áhrif á liðleika og virðast einstaklingar sem hreyfa sig meira vera yfirleitt liðugri en kyrrsetufólk 5. 


Almennt um liðleika
Liðleika er skipt í tvennt, hreyfiliðileika og kyrrstöðuliðleika. Hreyfiliðleiki  felur í sér margar hreyfingar út að efstu mörkum án þess að halda liðnum í þeirri stöðu. Kyrrstöðuliðleiki er hins vegar þegar liðnum er haldið við efstu sársaukamörk um stund. Einnig er liðleika skipt niður í virkan og óvirkan liðleika, með virkum liðleika er notast við eigið vöðvaafl til þess að hreyfa liðina en með óvirkum liðleika er notast við utanaðkomandi afl 6.

Heimildir: Gore, 2000. Hoffman, 2002. Lehman, 2006. Fradkin o.fl. 2004. Wilmore og Costill, 2002. Gjerset, 1999.

Til baka

Photo used under Creative Commons from MelvinSchlubman