golfform.is
  • Forsíða
  • Golfþjálfun
    • Golfstaða
    • Golfliðleiki
    • Golfstyrkur
    • Golfmeiðsli
  • Líkamsmat
  • GF verðskrá
  • Námskeið
  • Greinar
    • Golfpýramídinn
    • Ertu á leiðinni í golfferð?
    • S - líkamsstaða
    • C - líkamsstaða
    • 5 breyttar golfform áherslur
    • Hnébeygja
    • Hesturinn
    • Mikilvægi góðs jafnvægis
    • X-áhrifin í sveiflunni
    • Kvið vöðvarnir
    • Kóbran
    • Kominn tími til ....
    • Styrktaræfingar
    • Fróðleikur>
      • Vöðvavinna
      • Vöðvastyrkur
      • Liðleikaþjálfun
      • Styrktarþjálfun
      • Þolþjálfun
  • Um Golfform
    • Hafðu samband
  • Gjafabréf

Mikilvægi góðs jafnvægis

Picture

StöðujafnvægiJafnvægi er gríðarlega mikilvægt í golfsveiflunni, þegar kylfingurinn stillir sér upp til þess að miða og undirbúa höggið er stöðujafnvægið mikilvægur þáttur. Í stöðujafnvægi er líkamsstaðan, þyngdardreifing og líkamsvitundi mikilvægir þættir. TIl þess að öðlast betra stöðujafnvægi er mikilvægt að vinna með stöðu æfingar eins og kóbruna, hestastöðuna svo dæmi séu tekin, í þessari þjálfun er einnig hægt að vinna mikið með Swiss bolta til þess að efla stöðu styrkinn í líkamanum. Æfingar á jafnvægisbretti, hálfum frauðrúllum, bosu og Swiss bolta eru einnig hentug tæki til þjálfunar á jafnvægi.
Hreyfijafnvægi
Í golfsveiflunni sjálfri er það hins vegar hreyfijafnvægi alls ráðandi þáttur, til þess að bæta hreyfijafnvægi er spurning um að breyta aðeins til í æfingasafninu hjá sér og nota aðeins ímyndunaraflið þegar þú ert að lyfta. Hlutir eins og að standa á öðrum fæti meðan unnið er með að styrkja til dæmis hendur gerir það að verkum að æfingin er orðin tvíþætt, meðan unnið er með styrk í höndum er einnig unnið með jafnvægið með því að standa á öðrum fæti.
Mikilvægt er fyrir kylfinga að vinna sem allra minnst í tækjum sem setið er í, til þess að fá sem mest áreiti á líkamann og þjálfa hreyfijafnvægi um leið og æfingin er framkvæmd.
Við 
styrktarþjálfun eru æfingar með lausum lóðum, trissum og free motion tækjum hentugastar til þess að þjálfa hreyfijafnvægið um leið og unnið er með styrk.
Kóbran - æfing fyrir stöðujafnvægi
1. Liggðu á kviðnum, hendur niður með síðu og lófar snúa upp.  
2. Spenna skal rass um leið og brjóstkassi er færður frá gólfi og herðablöðum er þrýst saman.  
3. VIð það lyftist brjóstkassi, höfuð frá  frá gólfi.  Snúa skal lófum frá líkama svo þumlarnir vísa nú upp í loft.
4. Haldið stöðunni í 15-30 sek. og framkvæmið æfinguna 3 -5 sinnum með 20 sek hvíld á milli setta.5. Horfa skal áfram niður að gólfi.
Þetta er góð heildar stöðugleika æfing sem þjálfar bak-, rass- og hálsvöðva sem allir skipta miklu máli í golfþjálfun.