Umsögn frá þátttakendum á námskeiði"Ég var mjög ánægður með síðasta námskeið. Æfingarnar sem gerðar voru sögðu strax til sín. Maður fékk léttar harðsperrur í vöðva sem maður vissi ekki að væru til. Liðleiki minn hefur batnað til muna og á örugglega eftir að skila betri sveiflu næsta sumar. Ég er allavega búinn að skrá mig á næsta námskeið."
Friðgeir Kristinsson Komdu þér í form fyrir golf tímabiliðGolfform býður nú uppá sérhæft líkamsþjálfunar námskeið fyrir kylfinga í Veggsport
Unnið er eftir CHEK Golf Performance Series kerfinu:
Lokaðir tímar 2var í viku – golfupphitun, liðleikaþjálfun, stöðugleikaþjálfun, styrktarþjálfun í sal og stöðvaþjálfunu í tækjasal. Líkamsmælingar – liðleiki, core styrkur. Um 1 klst einka mælingar í samráði við þjálfara. Mælingar framkvæmdar um fyrstu helgi eftir að námskeið hefst. Sveiflugreining – þar sem verið er að skoða líkamsstöðu og líkamsbeitingu í golfsveiflunni. Aðgangur að tækjasal Veggsport þar sem hægt er að mæta og æfa aukalega eftir sérhæfðu golf stöðugleika- styrktar- og liðleikakerfi í samráði við kennara. Aðgangur að fróðleik og æfingum inná Golfform.is. Hámarks fjöldi þátttakenda 12. Kennari: Hallgrímur Jónasson CHEK Golf Performance Series þjálfari og íþróttafræðingur. |
|