Í form fyrir golftímabilið
Veggsport og Golfform bjóða kylfingum uppá námskeið í líkamsþjálfun, fyrir kylfingasem vilja markvissa þjálfun. Ekki nota golftímabilið til þess að koma þér í form, vertu í betra golfformi þegar golftímabilið byrjar. Næsta námskeið verður í byrjun febrúarog geta kylfingar valið um 4 vikur, 8 vikur eða 12 vikur. Tvennskonar námskeið eru í boði: • Golfform - Betri sveifla • Golfform – Hraðari sveifla • Golfform - Betri sveifla Námskeið sem hentar vel kylfingum sem hafa ekki verið að æfa sig verulega. Unnið með að byggja upp grunnstyrk. Farið í gegnum liðleika og líkamsmælingar í tímunum. Unnið er meira með liðleika- og jafnvægisþjálfun. Markmiðið er að liðka og styrkja helstu líkamsparta sem eru kylfingum mikilvægir í golfsveiflunni. • Golfform – Hraðari sveifla æft eftir samkomulagi. Námskeið fyrir kylfinga sem eru í góðu líkamsástandi. Markmið þjálfunarinnar að bæta líkamsástand verulega. Ætlað keppnis kylfingum. • Innifalið í námskeiðsgjaldi
|
|
Unnið er eftir CHEK Golf Performance Series kerfinu:
- Líkamsmælingar
- Liðleikþjálfun
- Stöðugleika þjálfun
- Styrktarþjálfun
Lokaðir tímar 2var í viku – golfupphitun, liðleikaþjálfun, stöðugleikaþjálfun og jafnvægisþjálfun.
Styrktarþjálfun í sal og stöðvaþjálfunu í tækjasal.
Líkamsmælingar – Á námskeiðinu er farið í nokkur líkams og liðleikatest, niðurstöður úr þeim segja enn frekar til um hvaða líkamshluta þarf að vinna betur með.
Umsögn frá þátttakendum á námskeiði
,,Ég var mjög ánægður með síðasta námskeið. Æfingarnar sem gerðar voru sögðu strax til sín. Maður fékk léttar harðsperrur í vöðva sem maður vissi ekki að væru til. Liðleiki minn hefur batnað til muna og á örugglega eftir að skila betri sveiflu næsta sumar."
Friðgeir Kristinsson
,,Hef verið mjög slæm í hálsi og baki en eftir að hafa verið á námskeiði hjá Golfform hefur mér liðið miklu betur en í langan tíma. Ég trúi ekki hvað þetta hefur góð áhrif á líkama minn."
Valgerður Jakobsdóttir,
Friðgeir Kristinsson
,,Hef verið mjög slæm í hálsi og baki en eftir að hafa verið á námskeiði hjá Golfform hefur mér liðið miklu betur en í langan tíma. Ég trúi ekki hvað þetta hefur góð áhrif á líkama minn."
Valgerður Jakobsdóttir,