Þolþjálfun kylfinga
Rannsóknir hafa sýnt að golf hefur jákvæð áhrif á þol kylfinga sem stunda íþróttina, áhrifin eru þó misjöfn eftir því hvernig landslagi völlurinn er á, hvernig útbúnaður er hjá viðkomandi kylfing, hvort hann beri golfsettið sjálfur eða sé með kerru.
Í rannsókn 1 kemur fram að í hverjum golfhring fór einstaklingur 8,212 + 447 metrar og var orkueyðsla á hringnum 1,759 + 176 kaloríur.
Rannsókn 2 kannaði hjartslátt á meðal 30 kylfinga á meðan þeir spiluðu á hæðóttum golfvelli, leiddi í ljós að meðal hjartsláttur kylfinganna var að mestum hluta spilatímans milli 50-74% af hámarks púls en í yfir tuttugu mínútur af heildartímanum fór púlsinn hjá kylfingunum yfir > 75% og > 85%. Þegar niðurstöður höfðu verið teknar saman sýndu þær fram á það að í 145,5 mínútur var púlsinn á milli 50 > 85 % af hámarkspúls þeirra sem rannsakaðir voru.
Sýnt hefur verið fram á að nauðsynlegt er að búa yfir ákveðinni loftháðri getu til þess að minnka líkur á mistökum og slæmum ákvörðunum á golfhringnum sem rekja má til þreytu á seinni hluta golfhringsins. Rannsóknir sýna fram á fylgni milli fituprósentu og frammistöðu, kylfingar með minni fituprósentu eiga auðveldara með að ná meiri hraða á mjaðmirnar sem skilar meiri hraða á kylfuhausinn í sveiflunni 3.
Heimildir: 1. Parkkari o.fl, 2000. 2. Stauch o.fl. 1999. 3. Dawes, 2005.