Vöðvastyrkur í golfsveiflunni
Mikilvægi þess að vera í góðu líkamlegu formi er mjög mikilvægt fyrir niðurstöðu þess að ná hámarks árangri í golfi hefur margoft verið sannprófað með rannsóknum. Í rannsókn (Lennon 1998), kemur fram að gott líkamlegt ástand kylfings auki kraftinn í golfsveiflu hans, einnig sýna niðurstöður Lennon að styrkur og liðleiki auki snúnings kraft þann sem gerir það að verkum að kylfingurinn getur haldið kylfunni lengur á réttum sveifluferli sem skilar betri og nákvæmari höggi.
Jafnvægi milli gagnverkandi vöðva er mjög mikilvægt hjá kylfingum til þess að koma í veg fyrir meiðsli og einnig til þess að auka stöðugleika kylfingsins í grunnstöðu hans (Gore, 2000)
Golfsveiflunni er skipt niður í þrjá hluta, aftursveiflu, niðursveiflu og framsveiflu. Í öllum þessum þrem hlutum er vöðvastyrkur mikilvægur, fætur spila stórt hlutverk í öllum þessum þrem þáttum þar sem þeir stuðla að réttri stöðu kylfingsins í gegnum sveifluna og þungaflutningi í henni. Í niðursveiflunni kemur inn aukið mikilvægi vöðvastyrks í höndum, brjósti, baki og kvið þar sem allir þessir líkamshlutar taka þátt í því að auka hraða kylfuhaussins (Hume, 2005).
Til baka